Nýliðar Þórs úr Þorlákshöfn og Snæfell eigast nú við í oddaleik 8-liða úrslita karla í Iceland Express deildinni. Leikurinn fer fram í Icelandic Glacial Höllinni en það lið sem fer áfram kemst í undanúrslit. Þegar hafa Grindavík og KR tryggt sig áfram en Stjarnan og Keflavík eigast einnig við í oddaleik í kvöld.
LOKATÖLUR Í ÞORLÁKSHÖFN 72-65
Þór er á leið í undanúrslit… magnaður leikur að baki. Hólmarar gerðu heiðarlega tilraun til að stela sigrinum en Þórsarar komust aftur á sporið og unnu magnaðan sigur.
– 6,0 sek eftir… Þórsarar eru á leið í undanúrslit… ekki einu sinni kraftaverk breytir því!
9,9 sek eftir og staðan 70-65 fyrir Þór. Snæfell tekur leikhlé, þeir eiga svo boltann. Þriggja stiga tilraun Marquis Hall klikkaði en þar hefði kappinn jafnað leikinn. Govens setti svo tvö víti og nú halda Hólmarar í sókn…
– 23 sek eftir og staðan 66-65 fyri rÞór
– 1.43mín til leiksloka: 64-65 fyrir Snæfell, Blagoj enda við að setja annan þrist fyrir Þór.
– 2.50mín til leiksloka: 59-65 fyrir Snæfell, Blagoj var enda við að setja þrist fyrir Þór, mögulega aðeina að lifna yfir heimamönnum.
– 4.35mín til leiksloka: 54-63, Nonni Mæju að skella niður þrist fyrir Snæfell sem fara gersamlega hamförum hérna síðan undir lok þriðja leikhluta. Snæfell er búið að opna fjórða 13-2!
– 5.30mín til leiksloka: 54-60 og Snæfell er hér á 19-2 ,,rönni" síðan í þriðja leikhluta! Heimamenn í Þór eru gersamlega heillum horfnir. Þór tekur leikhlé. Guðmundur Jónsson kominn með 5 villur í liði Þórs.
– 7.33mín til leiksloka: 54-56 Hankins-Cole að koma Snæfell yfir. Guðmundur Jónsson og Darri Hilmars báðir komnir með 4 villur í liði Þórs.
– 8.30mín til leiksloka: Hólmarar eru búnir að jafna, staðan 54-54.
– Þriðja leikhluta lokið: 52-50 fyrir Þór. Þvílíkur lokasprettur hjá Snæfell í leikhlutanum, tóku 11-0 sprett og minnkuðu muninn í tvö stig. Haffi Gunn kveikti í Hólmurum og þessar síðust tvær mínútur leikhlutans vildi ekkert niður hjá Þórsurum. Þá er fjórði leikhluti að hefjast, vörn nýliðanna eða reynsla Hólmara, hvort vegur þyngra, 10 mínútur eftir, annað liðið á leið í sumarfrí, hinir halda áfram í undanúrslit!
– 1.35mín eftir af þriðja: Haffi Gunn búinn að setja fimm stig í röð fyrir Snæfell og staðan 52-46 fyrir Þór. Hr. Borgarnes í góðum gír.
– 2.30mín eftir af þriðja: 52-44 fyrir Þór, Haffi Gunn enda við að setja niður þrist fyrir Snæfell og Þórsarar taka leikhlé. Hólmarar vaknaðir í þriðja leikhluta.
– 4.18mín eftir af þriðja: 52-39 fyrir Þór. Heimamenn sýna enga miskunn í vörninni. Hólmarar þurfa að finna glufurnar og það strax áður en grænir stinga endanlega af.
– 5.40mín eftir af þriðja: Gummi Jóns að koma Þór í 52-37 með þriggja stiga körfu! 15-4 fyrir Þór fyrstu fjóra og hálfa mínútuna í síðari hálfleik!
– 7.45mín eftir af þriðja: Þórsarar byrja með látum, Darri smellti niður þrist og staðan 47-35 fyrir Þór, heimamenn opna síðari hálfleik 10-2! Hólmarar taka leikhlé.
– Síðari hálfleikur er hafinn…og hann opnar Blagoj Janev fyrir Þór með sóknarfrákasti og körfu, staðan 39-33.
– Nýting liðanna í hálfleik:
Þór Þorlákshöfn: Tveggja 64% – þriggja 10% og víti 66,6%
Snæfell: Tveggja 34,6% – þriggja 33,3% og víti 42,8%
Þór Þorlákshöfn: Tveggja 64% – þriggja 10% og víti 66,6%
Snæfell: Tveggja 34,6% – þriggja 33,3% og víti 42,8%
– Hálfleikur: 37-33 fyrir Þór í hálfleik. Það hefur verið svona sitt lítið af hverju í fyrri hálfleik en Þórsarar ívið grimmari. Nonni Mæju er kominn með 15 stig og 5 fráköst hjá Snæfell en í liði Þórs er Darrin Govens með 11 stig og 4 fráköst.
– 1.01mín eftir af öðrum: Leiklhé í gangi, staðan 33-31 fyrir Þór. Quincy Hankins-Cole haltrar nú af velli eftir byltu með Hairston sem kvartar ekki eftir að hafa haltrað áðan. Síðasta mínúta fyrri hálfleiks að hefjast…
– 2.49mín eftir af öðrum: Óli Torfa kominn með fjórar villur í liði Snæfells. Staðan 33-28 fyrir Þór þegar Ingi Þór tekur leikhlé fyrir Snæfell. Matthew Hairston var enda við að haltra hér á bekkinn hjá Þór en hann hefur sennilega lent illa eftir að hann blakaði boltanum ofaní og fékk villu að auki, ,,hustle play" hjá Hairston en hann kemur aftur á völlinn eftir leikhlé, sjáum hvort hann kenni sér eymsla.
– 3.28mín eftir af öðrum: 30-28, Nonni Mæju að minnka muninn í tvö stig á vítalínunni. Nonni að leika vel hér fyrir Hólmara, Darri Hilmars kominn í 3 villur hjá Þór eins og Govens og tveir byrjunarliðsmenn heimamanna því komnir í villuvandræði.
– 5.00mín eftir af öðrum: 30-24… liðin skiptast hér á þristum, nú eru þeir farnir að detta eftir 16 mjög svo kaldar mínútur. Aðeins slaknað á vörninni og sumir hverjir farnir að passa sig á villunum svo stigin leka nú þétt inn.
– 6.31mín eftir af öðrum: 25-19 fyrir Þór og Darrin Govens var hér að fá sína þriðju villu í liði Þórs en Benedikt heldur honum enn inni á vellinum.
– 7.22mín eftir af öðrum: 22-19 fyrir Þór. Snæfell á 5-0 rispu sem endar með þrist frá Nonna Mæju, loksins datt hann og það í fjórðu tilraun hjá Nonna og Benedikt tekur leikhlé fyrir Þór.
– 8.34mín eftir af öðrum: 22-14 fyrir Þór. Þórsarar hafa enn ekki tekið víti í leiknum. Gestirnir úr Hólminum verða að herða róðurinn í vörninni ef þeir ætla sér eitthvað í kvöld.
– Fyrsta leikhluta lokið: Þór leiðir 20-13. Matthew Hairston kemst upp með ansi mikið og á þessum fyrstu tíu mínútum er hann villulaus, það er með ólíkindum! Vörn Þórs fyrnasterk og Hólmarar bragðdaufir í sínum sóknarleik. Govens er með 8 hjá Þór og Marquis 5 hjá Snæfell.
– 1.03. mín eftir af fyrsta: Marquis Hall setti fyrsta þrist leiksins og brotið á honum. Hann vogaði sér að brenna af vítinu! Fjögurra stiga sókn í súginn en staðan 18-13 fyrir Þór.
– 2.20mín eftir af fyrsta: 18-10 fyrir Þór og Snæfell virkilega að ,,ströggla" gegn vörn heimamanna. Hvorugt lið enn búið að setja þrist.
– 5.00mín eftir af fyrsta: Guðmundur Jóns kominn með 2 villur í liði Þórs en heimamenn leiða 12-8. Darri líflegur hjá Þór á upphafsmínútunum.
– 6.58mín eftir af fyrsta: 10-4 fyrir Þórsara og gestirnir úr Hólminum ekki alveg búnir að koma varnarleiknum í gang.
– Þetta er að bresta á, hér koma byrjunarliðin:
Þór Þorlákshöfn: Darrin Govens, Guðmundur Jónsson, Darri Hilmarsson, Blaoj Janev, Matthew Hairston
Snæfell: Marquis Sheldon Hall, Pálmi Freyr Sigurgeirsson, Sveinn Arnar Davíðsson, Jón Ólafur Jónsson, Quincy Hankins-Cole.
Þór Þorlákshöfn: Darrin Govens, Guðmundur Jónsson, Darri Hilmarsson, Blaoj Janev, Matthew Hairston
Snæfell: Marquis Sheldon Hall, Pálmi Freyr Sigurgeirsson, Sveinn Arnar Davíðsson, Jón Ólafur Jónsson, Quincy Hankins-Cole.
– Verið er að kynna liðin til leiks og desibilin gætu mögulega verið komin yfir leyfileg mörk. Þetta verður eitthvað!
– Nú eru rúmar fimm mínútur í leik og pallarnir fullir í Icelandic Glacial Höllinni. Bæði lið mætt með trommusveitir og Græni drekinn… já Græni drekinn lét skutla sér á leikstað í kerru sem dregin var áfram af eðalvagni. Queen í gangi og þá getur ekkert klikkað.




