Í hinum undanúrslitaleik í 9. flokki stúlkna mættust Keflavík og Njarðvík en þar fór Keflavík með stórsigur af hólmi, 56-28. Stigahæst í liði Keflavíkur var Katla Rún Garðarsdóttir með 13 stig en næstar voru Thelma Dís Ágústsdóttir með 12 stig og 6 fráköst og Elfa Falsdóttir með 9 stig. Í liði Njarðvíkur var Svala Sigurðardóttir stigahæst með 12 stig og 9 fráköst en næstar voru Þuríður Birna Björnsdóttir með 9 stig og 10 fráköst og Júlía Scheving Steindórsdóttir með 6 stig.
Það verða því Keflavík og Grindavík sem mætast í úrslitum í 9. flokki stúlkna á morgun.
í 10. flokki drengja mættust Grindavík og Njarðvík í öðrum undanúrslitaleiknum en þar hafði Njarðvík betur, 53-57. Magnús Már Traustason átti stórkostlegan leik fyrir Njarðvík með 31 stig og 20 fráköst sem skilar honum 43 framlagsstig í leiknum. Næstir á blað voru Ragnar Helgi Friðriksson með 13 stig og Kristinn Pálsson með 5 stig og 12 fráköst. Í liði Grindavíkur átti Hinrik Guðbjartsson stórgóðan leik með 21 stig en næstir voru Jón Axel Guðmundsson og Hilmar Kristjánsson með 11 stig hvor.
Í hinum undanúrslitaleik í 10. flokki drengja mættust Stjarnan og Haukar þar sem Haukar fóru með 11 stiga sigur, 69-58. Stigahæstur í liði Hauka var Kári Jónsson með 19 stig og 8 fráköst en næstu menn voru Kristján Leifur Sverrisson með 15 stig og 7 fráköst og Ívar Barja með 13 stig. í liði Stjörnunnar var Daði Lár Jónsson stigahæstur með 19 stig og 8 stoðsendingar en næstu menn voru helgi Rúnar Björnsson með 14 stig og 9 fráköst og Arnar Steinn Hansson með 11 stig.
Það verða því Haukar og Njarðvík sem mætast í úrslitum í 10. flokki drengja.




