Helgi Jónas Guðfinsson er hættur sem þjálfari Íslandsmeistara Grindavíkur. Á www.umfg.is kemur fram að Helgi hafi óskað eftir því að hætta með liðið sökum anna í vinnu.
Á heimasíðu Grindavíkur segir:
Aðilar skilja í mesta bróðerni en gífurleg ánægja var með störf Helga og árangurinn á þessu tímabili auðvitað hreint út sagt stórkostlegur þar sem sjálfur Íslandsmeistaratitillinn var rúsínan í pylsuendanum.
Stjórn kkd.umfg óskar Helga Jónasi alls hins besta í framtíðinni og hann mun örugglega snúa aftur einhvern tíma síðar.
Engin ákvörðun hefur verið tekin um eftirmann Helga.
Stjórn kkd.umfg.
Mynd/ [email protected]



