Menn hægja mögulega á sér þegar gamalmenni dúkkar upp á körfuboltavellinum og ætlar að sprikla með. Fæstir búast hinsvegar við því að verða skólaðir til af þeim gamla.
Nýliði ársins í NBA deildinni, Kyrie Irving, fór í leiðangur á dögunum dulbúinn sem gamalmennið ,,Uncle Drew" og lét menn aldeilis kenna á tevatninu.
Pepsi Max hafði víst eitthvað með þessa uppákomu að gera en þeir fóru til Bloomfield í New Jersey þar sem þeir þóttust taka upp heimildarmynd um leikmann að nafninu Kevin. Uncle Drew eða Kyrie mætti þá í dulargervi og smám saman fóru hlutirnir að gerast.




