HomeFréttirMatthías Orri í nám við Flagler háskólann: Síðasta ár hefur verið mikil...

Matthías Orri í nám við Flagler háskólann: Síðasta ár hefur verið mikil reynsla

Matthías Orri Sigurðarson verður nemi við Flagler háskólann í St. Augustine í Flórída næstu ár en skólinn er í NCAA II og leikur liðið í ,,Peach Belt" riðlinum. Karfan.is náði tali af Matthíasi sem sagði málið spurningu um að vera stór fiskur í litlu vatni eða lítill fiskur í stóru vatni. Matthías var í miðskóla í Bandaríkjunum síðasta skólaár en nú er það háskólinn sem tekur við.
,,Peach belt" er talið vera eitt af sterkustu ef ekki sterkasta conferencið í landinu, í NCAA II, þar sem mikið af leikmönnunum eru D1 ,,transferar" (koma úr NCAA I deildinni). Skólinn er semsagt í St.Augustine sem er elsta borg Bandaríkjanna og þar með lítur skólinn út í samræmi við það, þ.e. gamlar byggingar. Seinasta ár hefur verið gífurleg reynsla fyrir mig. Það er ótrúlegt hvernig kanarnir "hype-a" allt upp hérna í kringum körfuboltann og það var nánast bara eins og maður væri kominn út í atvinnumennsku hvað varðar umgjörð og þess háttar. Ég hefði líklega viljað fara út sem ,,junior" nemi og getað verið 2 ár í miðskóla til að fá meiri áhuga hjá öðrum skólum en samt sem áður er ég ánægður með að vera næstu árin í St.Augustine," sagði Matthías en hvernig leggst þetta nú í hann?
 
,,Þetta leggst bara vel í mig. Skólinn og borgin líta mjög vel út og ég held að mér muni líða vel þarna sem er nátturulega mikilvægt. Í sambandi við körfuboltann var þetta spurning um að vera stór "fiskur" í litlu vatni eða lítill "fiskur" í stóru vatni. Ég hefði líklega getað komist í aðeins hærri level af körfubolta en það var númer 1,2 og 3 hjá mér að fá tækifæri til að spila strax fyrsta árið mitt og hjálpa liðinu að vinna. Það var aðal ástæðan afhverju ég valdi Flagler," sagði Matthías sem hefur þegar skoðað skólann.
 
,,Allt í kringum skólann og borgina er mjög gamalt og alltaf fullt af túristum þar allt árið um kring. Það er evrópskur fílingur í borginni og eins og ég sagði áður held ég að mér muni líða vel þarna og það er gríðarlega mikilvægt," sagði Matthías sem kemur til landsins síðar í sumar enda framundan undirbúningur með U18 ára landsliði Ísland, sjálf Evrópukeppni U18 ára landsliða.
 
,,Aðsjálfsögðu heimsæki ég Klakann aðeins í sumar enda farinn að sakna fjölskyldu og vina. Svo er það bara landsliðsverkefnið í ágúst hjá U18 KK sem verður spennandi og gaman að taka þátt í."
 
Fréttir
- Auglýsing -