Kunnugleg fyrirsögn enda ekki í fyrsta sinn sem risarnir mætast í úrslitum á Spáni. Úrslitaeinvígið hefst í dag en Börsungar komust í úrslit með því að leggja Alicante 2-0 í 8-liða úrslitum. Næstir á matseðlinum voru liðsmenn Valencia en það einvígi fór 3-1.
Leið Madrídinga í úrslitin lá fyrst 2-0 í gegnum Banca Civica og svo 3-2 eftir oddaleik gegn Caja Laboral.
Fyrstu tveir leikir úrslitaseríunnar fara fram á heimavelli Barcelona, fyrsti leikurinn í kvöld og annar leikurinn á föstudag. Næstu tveir leikir fara fram á heimavelli Real Madrid og ef til oddaleiks kemur fer hann fram á heimavelli Barcelona.
Barcelona er ríkjandi meistari á Spáni en þetta er í fyrsta sinn síðan tímabilið 2000-2001 sem stórveldin mætast í úrslitum keppninnar og alls í nítjánda sinn síðan tímabilið 1956-1957 sem þau berjast um þann stóra.
Mynd/ Mikið mun mæða á ,,La Bomba" í úrslitum ACB deildarinnar.




