HomeFréttirMiami tryggði sér oddaleik á heimavelli - James á eldi

Miami tryggði sér oddaleik á heimavelli – James á eldi

LeBron James fór hamförum þegar Miami Heat tryggðu sér oddaleik í úrslitum austurstrandar NBA deildarinnar í nótt. Heat skelltu Boston á þeirra eigin heimavelli og fara því kokhraustir á heimavöllinn sinn þar sem oddaleikur liðanna mun fara fram aðfararnótt sunnudags. Lokatölur í nótt voru 98-79 Miami í vil.
LeBron James skoraði 45 stig í leiknum, tók 15 fráköst og gaf 5 stoðsendingar. Ekki amalegt dagsverk hjá kappanum en næstur honum var Dwyane Wade með 17 stig og 8 fráköst.
 
Hjá Boston var Rajon Rondo stigahæstur með 21 stig og 10 stoðsendingar og þeir Kevin Garnett og Brandon Bass gerðu báðir 12 stig. Boston gekk illa að finna þristana sína í leiknum, hittu aðeins úr einum af 14 tilraunum!
 
LeBron James varð svo aðeins annar leikmaðurinn í sögu úrslitakeppni NBA til þess að bjóða upp á 45-15-5 statt-línu en hinn ku vera nokk eldri, sjálfur Wilt Chamerlain.
 
  
Fréttir
- Auglýsing -