Einstaklingsbúðir Harðar Axels og Jóhanns Árna fóru fram á dögunum og þrátt fyrir blíðskaparveður allan tímann voru um 40 áhugasöm ungmenni sem létu ekki sólina aftra sér frá því að mæta. Við tókum eldsnöggan púls á Herði og Jóhanni að búðunum loknum en þeir voru ánægðir með frammistöðu iðkenda í búðunum.






