HomeFréttirReal Madrid búið að jafna

Real Madrid búið að jafna

Einvígi risanna á Spáni stendur nú jafnt en Real Madrid hefur jafnað úrslitaeinvígið í ACB deildinni gegn Barcelona. Staðan er nú 1-1 en Börsungar tóku fyrsta leikinn á eftirminnilegri flautukörfu.
Lokatölur í viðureign liðanna í gær voru 75-69 fyrir Real Madrid þar sem Sergio Rodriguez Gomez var atkvæðamestur með 14 stig og 4 stoðsendingar. Hjá Barcelona var Erazem Lorbek með 22 stig og 5 fráköst.
 
Einvígið færist nú yfir á heimavöll Real Madrid og mætast liðin í sínum þriðja leik þann 11. júní næstkomandi eða á mánudag.
 
 
  
Fréttir
- Auglýsing -