HomeFréttirFjöldi barna og unglinga í körfuboltabúðum KFÍ

Fjöldi barna og unglinga í körfuboltabúðum KFÍ

Nú standa yfir fjórðu sumarbúðir KFÍ, þar sem yfir hundrað krakkar frá 19 félögum víðsvegar af landinu sækja Ísafjörð heim til að spila körfubolta þar í viku. Þá er fjöldi landsþekktra og erlendir körfuboltamenn og þjálfarar sem koma að búðunum, þjálfa krakkana og halda fyrirlestra.
 
Vestur.is náði tali af Guðjóni M. Þorsteinssyni í dag, en hann hafur staðið í ströngu upp á síðkastið við að skipuleggja og halda utan um körfuboltabúðirnar, en yfir 50 sjálfboðaliðar koma að körfuboltabúðunum í ár.
 
Fréttir
- Auglýsing -