HomeFréttirKristján Pétur og Ari áfram á Ísafirði

Kristján Pétur og Ari áfram á Ísafirði

Kristján Pétur Andrésson og Ari Gylfason taka slaginn með KFÍ í úrvalsdeildinni á næstu leiktíð en báðir leikmenn skrifuðu undir nýjan tveggja ára samning við félagið á dögunum. KFÍ.is greinir frá.
Á heimasíðu KFÍ segir:
 
Í sumarblíðunni við Jakann skrifuðu Kristján Pétur Andrésson og Ari Gylfason undir nýjan tveggja ára samning við KFÍ og erum við himinlifandi að hafa þessa drengi áfram hjá félaginu. Nú er starfið framundan að koma saman góðu liði og er Pétur Már þjálfari bjartur á næsta vetur sem er sem allir vita í efstu deild eftir góðan vetur í 1.deildinni.
 
Mynd/ KFÍ.is – Kristján Pétur gengur frá sínum málum á Ísafirði.
  
Fréttir
- Auglýsing -