Af öðrum leikmannamálum er það að frétta að Körfuknattleiksdeildin hefur einnig samið við Salbjörgu Rögnu Sævarsdóttur, betur þekkt sem Dalla, um að leika áfram með félaginu. Dalla stóð sig frábærlega í vetur og er mjög efnilegur miðherji sem gerði góða hluti á sínu fyrsta tímabili og var valin efnilegasti leikmaður félagsins á vordögum.
Lele Hardy verður spilandi þjálfari Njarðvíkurkvenna
Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur hefur gengið frá ráðningu á nýjum þjálfara meistaraflokks kvenna. Samið var við Lele Hardy um að vera spilandi þjálfara liðsins. Henni til aðstoðar verður Lárus Magnússon. Njarðvíkingar greina frá þessu í tilkynningu í dag.
Í tilkynningunni segir ennfremur:
Það var vitað að stórta skarð þurfti að fylla eftir að Sverri Þór Sverrisson þjálfari Njarðvíkur á nýafstöðnu tímabili, ákvað að taka að sér þjálfun karlaliðs Grindavíkur. Lele Hardy er vel kunn hjá Njarðvík en hún lék með liðinu á liðnu tímabili við góðan orðstír og var m.a valinn besti erlendi leikmaður tímabilsins ásamt því að verða Íslands- og bikarmeistari með liðinu.
Stjórn Körfuknattleiskdeildar UMFN bindur miklar vonir við þetta nýja þjálfarateymi. Enda bæði vel kunn innviðum félagsins.
Stefna félagsins er sem áður að ávallt vera í fremstu röð.
Mynd/ Lele Hardy var ein aðalsprautan í sigursælu liði Njarðvíkinga á síðasta tímabili.
Fréttir





