Nýliðar Reynis úr Sandgerði eru komnir í 1. deild að nýju en Reynismenn mættu Augnablik í úrslitum 2. deildar karla á síðasta tímabili þar sem Augnablik hafði betur 89-80 í úrslitaleik sem fram fór í Laugardalshöll. Jón Guðbrandsson þjálfari Sandgerðinga sagði sumarið hafa verið gott.
,,Sumarið hefur verið gott, allir í fríi. Hópurinn verður svipaður og í fyrra og 4 1 reglan leggst vel í mig, gott fyrir litlu liðin," sagði Jón sem býst við því að Reynismenn verði að berjast fyrir tilverurétti sínum í deildinni.
Hvernig metur þú möguleika þíns liðs?
Liðin sem fara upp eru þau lið sem eiga mesta pening.
Nýliðar Reynis byrja á heimavelli þann 12. október þegar Valsmenn koma í heimsókn.




