HomeFréttirKomið að úrslitastundu hjá 18 ára liðinu

Komið að úrslitastundu hjá 18 ára liðinu

Íslenska U18 ára landsliðið leikur afar mikilvægan leik gegn Finnum á Evrópumótinu í dag en fátt annað en sigur dugir til að tryggja Íslandi sæti í 8-liða úrslitum B-deildar.
Í sex liða riðli eru fjögur lið með þrjá sigra og einn tapleik þegar lokadagur riðlakeppninnar fer fram í dag. Eins og áður hefur verið greint frá á Ísland harma að hefna gegn Finnlandi og verður afar fróðlegt að fylgjast með gangi mála en leikurinn hefst kl. 16:30 að íslenskum tíma.
 
 
Mynd/ [email protected] – Hugi Hólm í leik með U18 ára liðinu á NM í Svíþjóð.
 
  
Fréttir
- Auglýsing -