Fyrsta leik Íslands í riðlakeppni Evrópukeppninnar er lokið með ósigri gegn sterku liði Serba. Íslensku stríðsmennirnir börðust af miklum krafti en þrátt fyrir það reyndust Serbar númeri of stórir þar sem lokatölur voru 78-91. Íslenska liðið sýndi af sér magnaða baráttu á köflum og létu Serba hafa vel fyrir hlutunum.
Jón Arnór Stefánsson var stigahæstur í íslenska liðinu með 21 stig og 6 stoðsendingar en næstur honum var Pavel Ermolinskij með 14 stig, 5 fráköst og 5 stoðsendingar.
Gísli Ólafsson mun greina nánar fá leiknum innan skamms.
Mynd/ [email protected] – Pavel sækir að Serbum í Laugardalshöll í kvöld.




