Íslenska U18 ára landsliðið mætir Portúgal í dag á Evrópumótinu í B-deild sem fram fer í Bosníu. Ísland tapaði í gær gegn Hollendingum og Svíar fengu skell gegn Portúgölum svo um hörku leik verður að ræða hjá íslenska liðinu í dag.
Leikurinn hefst kl. 18:00 að íslenskum tíma.






