HomeFréttirMartin með 26 stig og Ísland hafnaði í 13. sæti

Martin með 26 stig og Ísland hafnaði í 13. sæti

U18 ára landslið Íslands hefur lokið keppni í B-deild Evrópukeppninnar í Bosníu þar sem Ísland hafnaði í 13. sæti eftir umspil við Svía. Ísland og Svíþjóð mættust í dag í leik um 13. sætið þar sem lokatölur voru 84-81 Íslandi í vil.
Martin Hermannsson var stigahæstur í íslenska liðinu með 26 stig, 6 fráköst og 3 stoðsendingar. Þá var Valur Orri Valsson með 12 stig, 4 fráköst og 4 stoðsendingar og Matthías Orri Sigurðarson skoraði 18 stig og tók 3 fráköst.
 
  
Fréttir
- Auglýsing -