HomeFréttirÍsland og Ísrael mætast í fyrsta sinn hérlendis - eigum enn eftir...

Ísland og Ísrael mætast í fyrsta sinn hérlendis – eigum enn eftir að vinna þá!

Ísland og Ísrael hafa mæst fjórum sinnum á körfuboltavellinum en þó aldrei á íslenskri grundu. England, Belgía, Svíþjóð og Portúgal hafa ljáð þjóðunum leikvelli undir leiki sína. Ísland hefur aldrei unnið Ísrael og hefur raunar alltaf tapað stórt, minnst með 20 stiga mun.
Fyrsti leikurinn fór fram í Hamilton í Englandi og var liður í forkeppni Ólympíuleikanna sem fram fóru seinna sama ár. Ísraelar gjörsigruðu Íslendinga 116-65. Stigahæstir Íslendinga voru Símon Ólafsson með 21 stig og Ríkharður Hrafnkelsson með 10.
 
Liðin mættust svo aftur í Liege í Belgíu 20. maí 1986 í Evrópukeppni B þjóða sem Ísland tók þátt í eftir glæsilegan sigur í keppni C þjóða þar sem Pálmar Sigurðsson skoraði eftirminnilega körfu. Ísraelar sigruðu
riðilinn í Liege en Ísland reið ekki feitum hesti frá mótinu. Ísraelar sigruðu okkar menn örugglega 93-64 og var Páll Kolbeinsson stigahæstur með 13 stig, Hreinn Þorkelsson 8, Torfi Magnússon 8, Birgir Mikaelsson
8, Guðni Guðnason 6, Pálmar Sigurðsson 6, Leifur Gústafsson 5, Ragnar Torfason 4, Valur Ingimundarson 2, Símon Ólafsson 2 og Tómas Holton 2.
 
Næst mættust liðin á æfingamóti í Stokkhólmi í Svíþjóð og enn sigruðu Ísraelar, nú 103-83. Pálmar Sigurðsson var stigahæstur með 25 og næstur honum kom Ívar Webster með 16 stig. Valur Ingimundarson og Jóhannes Kristbjörnsson voru með 12 og Guðmundur Bragason 8.
 
Síðast þegar þjóðirnar mættust var í undanriðli EM sem fram fór í Anadia í Portúgal. Nú sigruðu Ísraelar 113-82 og skoruðu Teitur Örlygsson og Valur Ingimundarson 20 stig hvor. Tómas Holton og Guðmundur Bragason skoruðu 9 hvor, Axel Nikulásson og Guðni Guðnason 6, Magnús Guðfinnsson og Guðjón Skúlason 5 og Birgir Mikaelsson 2.
 
En þetta er fortíðin og staðan 0-0 þegar leikur hefst kl 19:15 á morgun og Íslendingar sannarlega í dauðafæri að vinna fyrsta sigurinn gegn Ísraelum.
 
Mynd úr safni KKÍ/ Ólafur Rafnsson: Frá A-landsliðsferð karla á Möltu árið 1986. Frá vinstri eru Teitur Örlygsson, Páll Kolbeinsson, Hreiðar Hreiðarsson, Einar Ólafsson, Pálmar Sigurðsson og Gunnar Þorvarðarson.

Fréttir
- Auglýsing -