HomeFréttirMyndasafn: Landsliðið þjappaði sér saman í Skemmtigarðinum

Myndasafn: Landsliðið þjappaði sér saman í Skemmtigarðinum

A-landslið Íslands kom saman í Skemmtigarði Smáralindar í gær þar sem kapparnir leiddu saman hesta sína í nokkrum þrautum. Ungviðið Ægir Þór Steinarsson og Haukur Helgi Pálsson fóru mikinn enda yngstu leikmenn liðsins og þar af leiðandi í bestu og mestu snertingunni við leikjasalina heyrðist einhver viðstaddur segja.
Þarna mátti sjá Pavel Ermolinskij fara mikinn í ,,King of the Hammer" – Hlynur fyrirliði Bæringsson bekkpressaði blaðamann Mónitor og menn léku almennt á als oddi ef svo má að orði komast.
 
Landsliðsmennirnir verða þó öllu grárri fyrir járnum í kvöld þegar Ísraelsmenn koma í heimsókn enda eigum við enn eftir að finna okkar fyrsta sigur gegn þeim.
 
 
  
Fréttir
- Auglýsing -