HomeFréttirJóhanna Björk í Hauka

Jóhanna Björk í Hauka

Jóhanna Björk Sveinsdóttir hefur samið við Hauka í Hafnarfirði og mun leika með þeim í Dominos-deild kvenna á komandi leiktíð. Samningur Jóhönnu gildir til eins ár en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.
Jóhanna er ættuð úr Hveragerði og lék þar upp yngriflokka og með meistaraflokki Hamars til ársins 2009. Hún lék þá næstu tvö ár með KR og svo með Breiðabliki í 1. deildinni á síðustu leiktíð.

Þá eru þær Lovísa Björt Henningsdóttir og Dagbjört Samúelsdóttir snúnar til baka eftir árs dvöl erlendis.

Frétt á haukar.is


Jóhanna ásamt Gunnihildi Gunnarsdóttur, Dagbjörtu Samúelsdóttur og Lovísu Björt Henningsdóttur.

 
Forsíðumynd: Jóhanna við undirskrift ásamt Reyni Kristjánssyni, formanni mfl. ráðs kvenna, – haukar.is

[email protected]

Fréttir
- Auglýsing -