Hið árlega námskeið fyrir nýliða sem koma inn í NBA deildina var haldið nú í vikunni. Þar er farið yfir hin ýmsu mál sem munu breytast í lífi þessara manna á næstu árum við það eitt að vera komnir með samning við NBA lið.
Til að mynda eignast þessir ungu menn flóð að peningum sem þeir þurfa að kunna að fara vel með. Á þessu námskeiði er þeim leiðbeint í rétta átt hvað það varðar. Líkast til er farið yfir það hvernig gamlir vinir virðast allt í einu láta heyra í sér ásamt því að kvennhylli þeirra eykst til muna.
Dennis Scott fyrrum "riffill" fyrir Orlando Magic vinnur nú fyrir NBA Tv og heimsótti nýliðana á þessu námskeiði. Hægt er að skoða myndband af þessu öllu með því að smella hér.




