HomeFréttirLogi Gunnars: Þurfum að halda okkar skipulagi sóknarlega

Logi Gunnars: Þurfum að halda okkar skipulagi sóknarlega

 Logi Gunnarsson ræddi stutlega við Karfan.is í dag vegna leiksins í kvöld gegn Eistum. Logi kveður liðið vera í góðum gír þrátt fyrir langt og strangt ferðalag til og frá Svartfjallalandi.
"Við erum bara góðir og vitum að ef við spilum okkar leik og hittum eðlilega, sem við höfum ekki gert ennþá í þessari keppni, þá eigum við góða möguleika að vinna. Eistar eru mjög sterkir og hafa t.d. unnið Ísrael á útivelli en við eigum ennþá inni frábæran leik á okkar heimavelli og vonandi kemur hann á morgun.
 
Hvers ber að varast helst við lið EIsta?
 
Þeir eru fljótir upp völlinn og spila svolítið líkt og við sjálfir en eru stærri eins og allar þjóðir sem við mætum. Við þurfum að taka hraðaupphlaupin frá þeim með að taka góð skot og minnka tapaða bolta því eftir léleg skot og stolna bolta eru þeir fljótir fram.
 
Hvað má alls ekki gerast hjá Íslenska liðinu?
 
Við megum alls ekki vera tilbaka og óákveðnir. Þegar við erum ragir við að keyra á körfuna verður oft meira um mistök og það gefur þeim tækifæri á að keyra í bakið á okkur.
 
Hverjir eru veikleikar Eistaneska liðsins?
 
"Þeir eru kannski ekki eins vel skipulagðir varnarlega eins og t.d. Serbar og Svartfellingar. Ef við höldum okkur inní okkar skipulagi sóknarlega og nýtum okkur hraða okkar einn á einn á réttum tímum í sókninni gætu þeir lent í vandræðum með okkur." sagði Logi og bætti við.
"Það væri frábært að fá áfram þennan stuðning sem við höfum fengið í fyrstu tveimur heimaleikjunum, það skiptir miklu máli fyrir okkur."
Fréttir
- Auglýsing -