Ísland sækir í kvöld heim einn erfiðasta útivöllinn í riðlininum og þó víðar væri leitað þegar þeir spila seinni leikinn gegn Serbíu. Leikurinn hefst klukkan 18:30 að íslenskum tíma og má fylgjast með leiknum á aukarás RÚV í beinni útsendingu. Lið Serbíu vann Ísland í Laugardalshöllinni með 13 stiga mun, 78-91, í fyrri leik liðanna. Íslenska liðið spilaði þá feikivel og gátu gengið stoltir af velli.
Næsti heimaleikur Íslands er gegn Slóvakíu á sunnudaginn 2. september. Íslendingar unnu frækinn útisigur gegn Slóvakíu fyrr í keppninni og því verður spennandi að sjá hvort þeim takist að endurtaka leikinn á Sunnudaginn.
Mynd: [email protected]






