HomeFréttirHeimaklettur og byssan snúa aftur í Ljónagryfjuna

Heimaklettur og byssan snúa aftur í Ljónagryfjuna

Njarðvíkingar hafa fengið veglegan liðsstyrk fyrir komandi átök í Domino´s deild karla en þeir Friðrik Erlendur Stefánsson fyrrum fyrirliði og landsliðsmiðherji og Kristján Rúnar Sigurðsson eru komnir í slaginn með strákunum. www.umfn.is greinir frá.
Á heimasíðu Njarðvíkinga segir ennfremur:
 
Friðrik Erlendur hefur verið að æfa í sumar og ætlar að sjá hvort að skrokkurinn gefi honum einn vetur og verður reynsla hans og styrkur liðinu mikilvæg.  Kristján er nýfluttur suður úr höfuðborginni og er að hefja æfingar með liðinu og vonandi að hann komist í gírinn, enda afbragðs skotmaður.
 
www.umfn.is
  
Mynd/ Friðrik Erlendur í leik með Njarðvíkingum
Fréttir
- Auglýsing -