Íslenska liðið byrjaði leikinn betur og tókst að stoppa helstu sóknaraðgerðir Slóvakíu. Jakob Sigurðsson fann sig vel í sóknarleiknum og var kominn með 6 af fyrstu þrettán stigum Íslands þegar fyrsti leikhluti var hálfnaður. ÍSlandi náði mest 8 stiga forskoti þegar Hlynur Bæringsson setti niður þrist og kom Íslandi í 16-8. Slóvakía náði þá góðum kafla og voru búnir að minnka forskotið niður í 2 stig þegar Ægir Steinarsson setti sín fyrstu stig, 21-16. Ísland náði að auka forskotið aftur upp í 7 stig áður en flautað var til loka fyrsta leikhluta þegar Hlynur skilaði sínu egin frákasti ofaní körfuna um það leiti sem flautan gall, 25-18.
Haukur Pálsson byrjaði annan leikhluta af krafti, stal einum bolta og varði skot í næstu sókn. Hlutirnir voru þó fljótir að gerast og nokkur klaufamistök hjá Íslenska liðinu og forskotið var aftur komið niður í 2 stig, 27-25. Ísland hélt forskotinu næstu mínútur en það mátti lítið útaf fara þar sem gestirnir voru að fá auðveld stig undir körfunni á meðan Íslenska liðið virtist þurfa að hafa mun meira fyrir stigunum. Peter Öqvist tók svo leikhlé fyrir Ísland þegar annar leikhluti var rétt hálfnaður og Slóvakía komst yfir í fyrsta skiptið síðan í fyrsta leikhluta, 33-34. Íslenska liðið náði þó forskotinu aftur þegar Haukur Pálsson setti þrist og kom Íslandi yfir 40-37. Það dugði þó skammt því Slóvakía skoraði 12 stig gegn þremur stigum Íslands á næstu fjórum mínútum og Ísland var komið 6 stigum undir þegar Peter tók annað leikhlé Íslendinga í öðrum leikhluta, 43-49. Ísland skoraði svo síðustu 4 stig fyrri hálfleiks og því munaði aðeins 2 stigum þegar leikmenn gengu til klefa, 47-49.
Anton Gavel var að fara illa með íslenska liðið og var kominn með 18 stig í fyrri hálfleik og var algjör drifkraftur í sóknarleik þeirra. Á meðan voru margir um moðið í Íslenska liðinu og dreyfðust stigin vel á milli manna. Jón Arnór var þó að vanda stigahæstur með 12 stig en Hlynur var næstur með 11 stig og 7 fráköst.
Hlynur Bæringsson var ekki lengi að hirða sín fyrstu tvö fráköst í seinni hálfleik en hann þau bæði í fyrstu sókn Íslands í seinni hálfleik. Það skilaði þó litlu því skotin vildu bara ekki ofaní. Eftir þrjár mínútur af seinni hálfleik var forskot gestana komið upp í 5 stig, 49-54. Íslenska liðið lét þó ekki slá sig útaf laginu og minnkuðu forskotið hægt og rólega næstu mínúturnar. Hlynur Bæringsson átti virkilega fínan þriðja leikhluta og var búinn að næla sér í tvöfalda tvennu snemma í seinni hálfleik. Þó að tækifærin væru til staðar til þess að taka forskotið í leiknum þá virtist vanta herslumuninn til þess að klára það. Slóvakía hafði því lengst af eins til tveggja stiga forskot. Ísland komst svo loksins aftur yfir í stöðunni 60-59 þegar ein mínúta var eftir af þriðja leikhluta þegar Jakob Sigurðsson skoraði sín fyrstu stig síðan í fyrsta leikhluta. Það forskot endist þó skammt því þegar flautað var til loka þriðja leikhluta höfðu gestirnir aftur náð tveggja stiga forskoti, 60-62.
Slóvakía setti fyrstu þrjú stig fjórða leikhluta áður en Ísland náði að svara. Pavel jafnaði þó metin fljótlega eftir það af vítalínunni í stöðunni 65-65. Pavel hélt áfram og kom Íslandi svo aftur yfir í stöðunni 68-67 með glæsilegu þriggja stiga skoti sem kveikti vel í stuðningsmönnum Íslands. Finnur Atli og Pavel áttu báðir mjög góða innkomu í Íslenska liðið í fjórða leikhluta og voru duglegir að sækja á körfuna. Slóvakía tók leikhlé þegar sjö mínútur voru eftir af leiknum og Finnur Atli var á leiðinni á línuna að taka tvö. Liðin skiptust á að leiða leikinn næstu mínútur og liðin voru lengi vel jöfn í stöðunni 73-73 þegar illa gekk að koma boltanum ofaní. Slóvakía komst aftur í þriggja stiga forskot þegar Pavel fékk dæmda á sig tæknivillu og gestirnir nýttu það tækifæri vel. Spennan var farin að magnast í höllinni og það var alveg ljóst hver ætti að taka af skarið fyrir gestina, Anton Gavel var að setja niður stór skot og þegar tvær og hálf mínúta var eftir kom hann gestunum í 6 stiga forskot með þrist, 76-82. Ísland tókst að loka öllum leiðum gestana að körfunni á lokakaflanum og þegar ein mínúta var eftir var forskot gestana komið niður í 2 stig, 84-86. Gestirnir tóku þá leikhlé. Ísland stóð vaktina vel í vörninni á lokamínútunum og fengu tækifæri til þess að jafan leikinn um það leiti sem loka flautan gall. Það var Jón Arnór sem keyrði í átt að körfunni og virtist vera að leggja boltan laglega ofaní, það var þó ekki svo auðvelt því boltinn rúllaði einn hring á hringnum áður en hann datt niður, vitlausu megin við hringinn. Á endanum munaði því aðeins millimetrum hvort íslenska liðið næði að jafna leikinn og fara í framlengingu. Sorglegt tap því staðreynd í leik sem íslenska liðið spilaði mjög vel og áttu meira skilið.
mynd: [email protected]






