HomeFréttirSkallagrímur tryggir sér starfskfrafta Haminn Quaintance

Skallagrímur tryggir sér starfskfrafta Haminn Quaintance

 Skallagrímur hefur samið við bandaríkjamanninn Haminn Quaintance um að spila með þeim á næsta tímabili samkvæmt heimasíðu þeirra.  Haminn sem einnig gengur undir nafninu "Q" þykir afar hárprúður og verður að öllum líkindum auðþekkjanlegur á parketum landsins í vetur.  Hann er rétt rúmlega tveir metrar á hæð og er 26 ára gamall.  
Til marks um styrkleika hans fór Haminn beint í atvinnumennsku í Ísrael eftir háskólanám sitt í Bandaríkjunum en Ísraelska deildin þykir með þeim sterkari utan bandaríkjanna.  Þar spilaði hann með tveimur liðum áður en hann flutti sig um set og spilaði í Ástralíu.  Hérna fyrir neðan má sjá nokkur tilþrif frá kauða.
 
 
 
Fréttir
- Auglýsing -