Margrét Kara Sturludóttir mun ekki koma til með að spila með KR í vetur þar sem hún gengur nú með barni. Þetta staðfesti Kara í samtali við Karfan.is í morgun. "Auðvitað er súrt að missa af mótinu en að sama skapi er nýr og skemmtegur kafli að hefjast hjá mér" sagði Kara í samtali við Karfan.is
Kara hefur undanfarin ár verið máttarstólpi í kvennaliði KR og því mikill missir fyrir liðið að sjá á eftir henni þetta árið. "Ég er skráð í Mars nk. og það verður því engin bolti hjá mér fyrr en á næsta tímabili" bætti Kara við.






