Jón Arnór Stefánsson sýndi enn og aftur hvers hann er megnugur gegn Svartfjallalandi í dag þar sem hann spilaði frábæran leik, skoraði 32 stig og leiddi Íslenska liðið áfram gegn efsta liði riðilsins. Það dugði þó ekki til sigurs þó litlu hafi munað því Íslenska liðið var yfir í rúmlega 35 mínútur þangað til Svartfjallaland komst fyrst yfir í stöðunni 83-84. Þeir litu ekki til baka eftir það og unnu 9 stiga sigur, 92-101. Karfan.is náði í skottið á honum rétt áður en hann hljóp í viðtal á RÚV.
Fyrri hálfleikur hjá Íslenska liðinu er líklega það besta sem liði hefur spilað í mjög langan tíma.
"Jú við vorum allir að hitta vel, allir að skila góðu framlagi sem hefur vantað í þessari keppni hingað til. Þeir áttu bara í basli með okkur, það fór allt niður og við vorum að spila mjög góða vörn líka fannst mér. Það var góð stemming í hópnum og vorum ofsalega hreyfanlegir inná vellinum. Við framkvæmdum líka vel í sókninni og það bara gaman að vera partur af þessu í fyrri hálfleik".
Það gerist þó í hálfleik að gestirnir ná að snúa leiknum algjörlega sér í hag og vinna upp forskotið og gott betur.
"Við völtum yfir þá í fyrri hálfleik og það verður einhver hugarfarsbreyting hjá þeim auðvita og við bjuggumst alveg við því að þeir myndu koma með run á okkur eins og gengur og gerist í körfubolta. Það var erfitt að eiga við þá, þetta er gott lið, þeir eru búnir að vinna alla leikina í riðlinum en það var alveg ótrúlegt hvað þeir settu af skotum í seinni hálfleik, eins og við í fyrri hálfleik".
[email protected]
mynd: [email protected]