Gunnar ,,jaxl" Einarsson er kominn á fullt í einkaþjálfun en þegar kappinn lagði skónna á hilluna var enginn leikmaður í íslensku úrvalsdeildinni í betra formi en nákvæmlega hann. Nú hefur kappinn farið í ,,hitt liðið" ef svo má að orði komast, farinn að leiðbeina í stað þess að taka leiðbeiningum.
Gunnar heldur úti heimasíðunni www.einka.is og þar má komast í færi við fjarþjálfun, einkaþjálfun og hópþjálfun ásamt fleiru. Hægt er að hafa samband við Gunnar á [email protected] og þá má fá nasaþefinn af því sem kappinn er að gera í mögnuðu myndbandi hér að neðan.
Þá bendum við líka á að þessi liður, PLÖGG, er eitthvað sem gæti vel sómað sér á síðunni fyrir þá sem hafa gaman að því að leika sér á gráa svæðinu millum kynninga og auglýsinga svo ef þið hafið eitthvað í pokahorninu sem þarf dagsljós þá er það bara [email protected]
Myndband frá einka.is:





