HomeFréttirJón með 14 stig í æfingaleik - Jones til liðs við Zaragoza

Jón með 14 stig í æfingaleik – Jones til liðs við Zaragoza

CAI Zaragoza tapaði æfinga leik gegn Unicaja um daginn 82-93 þar sem Jón Arnór Stefánsson skoraði 14 stig. Þá hafa Jón og félagar einnig fengið nýjan liðsmann frá Bandaríkjunum sem heitir Joseph Jones og mun vonandi styrkja hópinn fyrir átökin í ACB deildinni á Spáni í vetur.
Jones þessi er fæddur árið 1986 og kemur frá BC Galil Gilboa í ísraelsku deildinni þar sem hann var með 14,3 stig og 4,4 fráköst að meðaltali í leik á 21 mínútu að jafnaði.
 
Svo var það heilög skylda okkar að láta þessa mynd fylgja með fréttinni enda er Jón alveg rafmagnaður náungi.
  
Fréttir
- Auglýsing -