HomeFréttirDagur: Mun nýta tækifærin sem Teitur gefur mér eins vel og ég...

Dagur: Mun nýta tækifærin sem Teitur gefur mér eins vel og ég get

Dagur Kár Jónsson hefur haft í mörg horn að líta síðustu vikur og mánuði en fyrr á þessu ári vann hann til silfurverðlauna með U18 ára landsliði Íslands á Norðurlandmótinu. Þar á eftir var EM í B-deild á dagskrá og nú er hann kominn á fullt með Stjörnunni og setti 20 stig yfir Hauka á Reykjanesmótinu. Dagur er á meðal efnilegustu leikmanna landsins um þessar mundir og Karfan.is tók eldsnöggt hús á þessum Garðbæing sem á rætur að rekja suður með sjó.
Dagur Kár er Jónsson Kr. Gíslasonar sem m.a. lék með Keflavík, þjálfaði liðið og slíkt hið sama gerði Jón með A-landslið Íslands. Dagur á því ekki langt að sækja körfuboltaáhugann en tveir yngri bræður hans, Daði og Dúi æfa einnig körfubolta.
 
Hver finnst þér staðan á Stjörnuliðinu í dag?
Við erum á góðu róli, útlendingarnir komu snemma til landsins svo við höfum haft góðan tíma til að æfa saman sem lið og byggja upp góða liðsheild fyrir komandi átök.
 
Hvernig er formið á þér eftir annasamt sumar með U18 ára landsliðinu?
Ég er í frábæru formi, var á fullu að lyfta í allt sumar, sem og að vinna í mínum leik, maður uppsker bara eins og maður sáir. Það var frábær reynsla að æfa og spila með U18 í sumar, þetta fer allt í reynslubankann.
 
Hvernig líst þér á komandi tímabil í Domino´s deildinni með Stjörnunni?
Mér líst mjög vel á þetta tímabil, við erum með sterkan hóp og setjum okkur há markmið. Í ár er ég persónulega í stærra hlutverki en í fyrra og ég mun nýta þessi tækifæri sem Teitur er að gefa mér eins vel og ég get.
 
  
Fréttir
- Auglýsing -