Í dag fóru fram fjórir leikir í Lengjubikar kvenna þar sem tveir heimasigrar og tveir útisigrar komu á daginn. Keflvíkingar skelltu sér til Grindavíkur og rassskelltu þar gular stöllur sínar með 35 stiga mun! Þá er það komið á hreint að Keflavík og Snæfell munu leika til úrslita í Lengjubikar kvenna þetta árið og fer leikurinn fram í Keflavík þann 27. september næstkomandi.
Úrslit dagsins:
Grindavík 65-100 Keflavík
KR 90-67 Stjarnan
Tölfræði vantar úr þessum tveimur leikjum hér að ofan.
Valur-Fjölnir 69-48 (17-17, 10-9, 19-11, 23-11)
Valur: Unnur Lára Ásgeirsdóttir 13/4 fráköst, Guðbjörg Sverrisdóttir 12/7 fráköst/6 stoðsendingar, Alberta Auguste 11/4 fráköst, Kristrún Sigurjónsdóttir 9/4 fráköst, María Björnsdóttir 6/5 fráköst, Ragnheiður Benónísdóttir 4, Ragna Margrét Brynjarsdóttir 4/7 fráköst, Sara Diljá Sigurðardóttir 4, Þórunn Bjarnadóttir 4, Hallveig Jónsdóttir 2, Kristín Óladóttir 0, Elsa Rún Karlsdóttir 0.
Fjölnir: Porsha Porter 15/6 fráköst, Hrund Jóhannsdóttir 8/6 fráköst, Birna Eiríksdóttir 8, Bergdís Ragnarsdóttir 6/11 fráköst, Heiðrún Harpa Ríkharðsdóttir 5, Hugrún Eva Valdimarsdóttir 2, Fanney Lind Guðmundsdóttir 2/7 fráköst, Erla Sif Kristinsdóttir 2, Eva María Emilsdóttir 0, Sigrún Anna Ragnarsdóttir 0, Dagbjört Helga Eiríksdóttir 0, Erna María Sveinsdóttir 0.
Dómarar: Kristinn Óskarsson, Halldór Geir Jensson, Davíð Tómas Tómasson
Haukar-Snæfell 69-77 (19-25, 20-20, 12-15, 18-17)
Haukar: Gunnhildur Gunnarsdóttir 17, Jóhanna Björk Sveinsdóttir 15/12 fráköst, Lovísa Björt Henningsdóttir 10/6 fráköst, Auður Íris Ólafsdóttir 9/6 stoðsendingar, Margrét Rósa Hálfdanardóttir 9/10 fráköst, Dagbjört Samúelsdóttir 9/7 fráköst, Ína Salóme Sturludóttir 0, Sólrún Inga Gísladóttir 0, Inga Sif Sigfúsdóttir 0, Þóra Kristín Jónsdóttir 0, Sylvía Rún Hálfdanardóttir 0.
Snæfell: Berglind Gunnarsdóttir 25, Kieraah Marlow 19/8 fráköst, Hildur Sigurdardottir 13/10 fráköst/7 stoðsendingar, Alda Leif Jónsdóttir 8/7 stoðsendingar, Hildur Björg Kjartansdóttir 6/14 fráköst/3 varin skot, Helga Hjördís Björgvinsdóttir 4/6 fráköst, Rósa Indriðadóttir 2, Rebekka Rán Karlsdóttir 0, Aníta Sæþórsdóttir 0, Silja Katrín Davíðsdóttir 0.
Dómarar: Sigmundur Már Herbertsson, Steinar Orri Sigurdsson, Ísak Ernir Kristinsson
Mynd/ Hólmarinn Berglind Gunnarsdóttir setti 25 stig á Hauka í dag.




