KR skellti Stjörnunni í Lengjubikar kvenna í dag. Tomasz Kolodziejski var mættur í DHL Höllina og tók meðfylgjandi myndir.
KR tók forystuna snemma í leiknum og léku aldrei betur en undir stjórn Bjargar Guðrúnar Einarsdóttur sem gekk í raðir röndóttra í sumar.
Stigahæstar voru Bryndís Hanna Hreinsdóttir hjá Stjörnuni með 20 en hjá KR Helga Einarsdóttir 24, Patechia Hartman 20, Kristbjörg Pálsdóttir 18, Sigrún Ámundadóttir 14 og Björg Einars 11





