HomeFréttirInnlit hjá liðunum í Domino´s deild kvenna: Njarðvík

Innlit hjá liðunum í Domino´s deild kvenna: Njarðvík

Í dag og næstu daga verðum við með innlit hjá liðunum sem skipa Domino´s deild kvenna. Við hefjum leik á Íslands- og bikarmeisturum UMFN þar sem Salbjörg Ragna Sævarsdóttir sat fyrir svörum.
Hvaða breytingar hafa orðið á leikmannahópnum hjá ykkur frá síðustu leiktíð?
Petrúnella, Harpa Rakel og Ólöf Helga skiptu yfir í Grindavík en annars er hópurinn okkar sá sami.
 
Hvernig hefur undirbúningstímabilið gengið hjá ykkur?
Það hefur gengið ágætlega, við erum með mjög ungan og efnilegan leikmannahóp sem hefur verið að bæta sig allt undirbúningstímabilið. Svo kemur Lele inn í hópinn og Ingibjörg þegar hún er búin að ná sér af meiðslunum þannig að þetta lítur allt mjög vel út fyrir komandi tímabil.
 
Hvernig leggst komandi tímabil í þig í Domino´s deildinni?
Það leggst bara mjög vel í mig. Ég held að þetta verði skemmtilegt og spennandi tímabil.
 
Hvaða lið telur þú að verði sterkust?
Erfitt að segja, deildin var mjög jöfn í fyrra, þar sem allir gátu unnið alla og ég reikna með að tímabilið í ár verði svipað.
 
Hvaða leikmönnum ert þú spennt fyrir, hverjar stíga upp?
Ég er ekki beint spennt fyrir einhverjum einum leikmanni en bara að sjá alla ungu leikmennina sem eiga eftir að stíga upp í vetur og spila stór hlutverk hjá sínum liðum.
 
Keppni í Domino´s deild kvenna hefst 3. október næstkomandi.
 
Fyrsta umferð:
 
KR-Grindavík
Haukar-Keflavík
Fjölnir-Njarðvík
Valur-Snæfell
  
Fréttir
- Auglýsing -