HomeFréttirInnlit hjá liðunum í Domino´s deild kvenna: Valur

Innlit hjá liðunum í Domino´s deild kvenna: Valur

Ágúst Sigurður Björgvinsson þjálfari Valskvenna situr fyrir svörum í innlitinu að Hlíðarenda en Valskonur misstu naumlega af úrslitakeppninni á síðustu leiktíð og ætla vísast ekki að láta það koma fyrir aftur.
Hvaða breytingar hafa orðið á leikmannahópnum hjá ykkur frá síðustu leiktíð?
Við höfum náð að halda sama kjarna en María Ben Erlingsdóttir er farin til Frakklands og Berglind Karen Ingvarsdóttir er barnshafandi og verður frá sökum þess. Ragna Margrét Brynjarsdóttir er komin frá Svíþjóð, Lilja Ósk Sigmarsdóttir frá Grindvík en hún var að glíma við öklameiðsl allt síðasta tímabil, Sóllilja Bjarnadóttir kemur frá Breiðablik. Elsa Rún Karlsdóttir er svo að koma upp úr yngriflokkum.
 
Hvernig hefur undirbúningstímabilið gengið hjá ykkur?
Undirbúningstímabilið hefur gengið gríðalega vel, stelpunar eru að koma mjög vel undan sumri enda hafa þær æft virkilega vel í allt sumar. Núna í byrjun september fórum við í æfinga- og keppnisferð til Kaupmannahafnar þar sem mfl. spilað 4 leiki og U18 lið okkar 2 leiki. Ferðin heppnaðist vel í alla staði og hópurinn en samstilltari fyrir vikið.
 
Hvernig leggst komandi tímabil í þig í Domino´s deildinni?
Tímabilið leggst mjög vel í okkur og við erum full tilhlökkunar á Hlíðarenda.
 
Hvaða lið telur þú að verði sterkust?
Það verður mjög fróðlegt að sjá hvernig deildin mun þróast í vetur eftir áherslubreytingar varðandi erlenda leikmenn. Það er erfti að sjá hvaða lið verða sterkust en við erum að vonast til að við séum eitt þeirra.
 
Hvaða leikmönnum ert þú spenntur fyrir, hverjar stíga upp?
Ég hef að sjálfsögðu séð lang mest til minna leikmanna og er þar af leiðandi spenntastur fyrir þeim. Guðbjörg Sverrisdóttir hefur verið að spila feikilega vel á undirbúingstímabilinu sem og Unnur Lára Ásgeirsdóttir. Kristrún Sigurjónsdóttir er í hörku form og er að nálgast sitt besta form. Hallveig Jónsdóttir er á sínu öðru ári í úrvalsdeild og verður fróðlegt að fylgjast með henni í vetur ásamt svo mörgum efnilegum og góðum leikmönnum sem við höfum úr að moða í Val.
 
Keppni í Domino´s deild kvenna hefst 3. október næstkomandi.

Fyrsta umferð:
 
KR-Grindavík
Haukar-Keflavík
Fjölnir-Njarðvík
Valur-Snæfell
  
Fréttir
- Auglýsing -