HomeFréttirInnlit hjá liðunum í Domino´s deild karla: Skallagrímur

Innlit hjá liðunum í Domino´s deild karla: Skallagrímur

Pálmi Þór Sævarsson stýrir nýliðum Skallagríms í Domino´s deild karla í vetur. Pálmi var einnig við stjórnartaumana á síðustu leiktíð þegar Borgnesingar unnu sér sæti í úrvalsdeildinni eftir hörku oddaleik gegn ÍA frammi fyrir fullu íþróttahúsi í Borgarensi. Pálmi stendur skil á svörum Borgnesinga í þessu innliti.
Hvaða breytingar hafa orðið á leikmannahópnum hjá ykkur frá síðustu leiktíð?
Við höfum fengið til liðs við okkur þrjá nýja stráka, Trausti Eiríksson er komin til baka úr Fjölnir, Orri frá Lundi (Jónsson) mættur aftur i Borgarfjörðinn frá FSu og síðan fékk ég unglambið Pál Axel frá Grindavík. Nýjir erlendri leikmenn eru Haminn Qauintance og Carlos Medlock. Farnir eru: Darrell Flake í Þór Þorlákshöfn, Elfar Ólafsson ÍA, Óðinn Guðmundsson hættur og Hilmar Guðjónsson er meiddur og verður ekki með okur í vetur.
 
Hvernig hefur undirbúningstímabilið gengið hjá ykkur?
Undirbúningstímabilið hefur gengið ágætlega hjá okkur, menn búnir að vera duglegir að taka á því. Menn svona hægt og rólega að komast inn í þá hluti sem við viljum vera að gera. Frekar erfiðlega hefur gengið hjá okkur að ganga frá erlendum leikmönnun til landsins en vonandi verða þeir mættir fyrir mót.
 
Hvernig leggst komandi tímabil í þig í Domino´s deildinni?
Tímabilið leggst bara virkilega vel í mig, þetta verður mjög spennandi og krefjandi vetur. Við erum með mikið af ungum og duglegum strákum sem eru að fara að spila sína fyrstu leiki í úrvalsdeild þannig að þetta verður bara virkilega gaman.
 
Hvaða lið telur þú að verði sterkust?
Ég reikna með að deildin verði jöfn og spennandi í vetur þar sem mörg lið gætu blandað sér í toppinn. Snæfell, KR og Stjarnan eru kannski með bestu liðin á pappírunum fyrir mót.
 
Hvaða leikmönnum ert þú spenntur fyrir, hverjar stíga upp?
Sé í hendi mér nokkra unga stráka stíga fram og láta að sér kveða í vetur, síðan er bara undir þeim komið að grípa tækifærið þegar að það gefst.
 
Keppni í Domino´s deild karla hefst þann 7. október og lýkur fyrstu umferðinni þann 8. október
 
Fyrsta umferðin
 
7. október
Fjölnir-KR
Tindastóll-Stjarnan
KFÍ-Skallagrímur
 
8. október
Keflavík-Grindavík
Snæfell-ÍR
Þór Þorlákshöfn-Njarðvík
 
  
Fréttir
- Auglýsing -