Ólafur E. Rafnsson var á föstudaginn heiðraður með æðstu viðurkenningu European Olympic Committiees (EOC), Order Of Merit Award, á ársþingi samtakanna sem fram fór í Róm. Eiginkona Ólafs heitins, Gerður Guðjónsdóttir, ásamt börnum þeirra Auði, Sigurði og Sigrúnu, tók á móti viðurkenningunni frá Patrick Hickey forseta EOC.
Varaforseti EOC, Alexander Koslovski flutti ávarp þar sem hann fór stuttlega yfir feril Ólafs innan íþrótta- og ólympíuhreyfingarinnar í máli og myndum. Gerður flutti síðan þakkarávarp fyrir hönd fjölskyldunnar. Í virðingarskyni risu allir úr sætum á meðan afhendingarathöfnin fór fram og ljóst að allir viðstaddir voru djúpt snortnir.
Ólafur naut mikillar virðingar innan ólympíuhreyfingarinnar. Minning hans lifir.
Frétt og mynd af www.kki.is



