spot_img
HomeFréttirSkilið við á góðum nótum

Skilið við á góðum nótum

Stjórn KKD UMFG hefur sent frá sér eftirfarandi yfirlýsingu:
 
 
Körfuknattleiksdeild Grindavíkur, skrifaði í dag undir félagsskipti fyrir Björn Steinar Brynjólfsson en hann í gengur í raðir Stjörnunnar.
 
Þar sem Björn Steinar er borinn og barnfæddur Grindvíkingur og hefur leikið allan sinn feril í Grindavík, þá finnst okkur erfitt að sjá á eftir honum. Björn Steinar hefur verið mikilvægur hlekkur í liði Íslandsmeistara síðastliðinna tveggja ára og átti m.a. stóran þátt í sigrinum á móti ÞórÞorlákshöfn sem tryggði titilinn 2012.
 
Viðskilnaðurinn milli Bjössa og Kkd. Grindavíkur er á góðum nótum en vissulega var Bjössi ekki alveg sáttur við það hlutverk sem hann fékk. Við sýnum því fullan skilning og óskum honum alls hins besta á nýjum vígstöðvum.
 
Dyrnar að Grindavík munu ávallt standa Bjössa opnar.
 
Stjórn KKD UMFG.
  
Fréttir
- Auglýsing -