spot_img
HomeFréttirÍslendingaliðin lágu öll

Íslendingaliðin lágu öll

Öll þrjú Íslendingaliðin í sænsku úrvalsdeildinni máttu sætta sig við ósigur í gærkvöldi. Naumt var það á köflum en stærsti ósigurinn féll í hlut Sundsvall Drekanna sem lágu 66-77 gegn Södertalje á heimavelli sínum.
 
 
Sundsvall Dragon 66-77 Södertalje Kings
Jakob Örn Sigurðarson var stigahæstur með 17 stig, 2 fráköst og eina stoðsendingu. Hlynur Bæringsson bætti við 11 stigum og 7 fráköstum, Ægir Þór Steinarsson var með 2 stig, 3 fráköst og 1 stoðsendingu og þá var Ragnar Nathanaelsson með 6 stig og 6 fráköst.
 
Uppsala Basket 89-81 LF Basket
Haukur Helgi Pálsson var með 14 stig, 6 fráköst og 3 stoðsendingar hjá LF.
 
Solna 100-102 Boras Basket
Sigurður Gunnar Þorsteinsson var með 2 stig, 8 fráköst og 2 stoðsendingar í liði Solna.
 
Staðan í sænsku deildinni
Grundserien
Nr Lag V/F Poäng
1. Borås Basket 4/0 8
2. Södertälje Kings 4/0 8
3. Uppsala Basket 3/0 6
4. Norrköping Dolphins 2/1 4
5. LF Basket 2/1 4
6. ecoÖrebro 2/1 4
7. Sundsvall Dragons 1/2 2
8. Umeå BSKT 1/4 2
9. Jämtland Basket 1/3 2
10. Solna Vikings 0/4 0
11. KFUM Nässjö 0/4 0
  
Fréttir
- Auglýsing -