HomeFréttirMagnað ævintýri fyrir þá

Magnað ævintýri fyrir þá

 

Mikið hefur verið og er að fara gerast hjá landsliði okkar íslendinga þetta árið. Fyrst voru það Smáþjóðaleikarnir, sem voru hér heima í byrjun júní. Þar sem að liðið náði öðru sæti. Næst er það hinsvegar lokamót Eurobasket í Berlín nú í september. Við það tilefni fannst okkur kjörið að hafa uppi á nokkrum fyrrum landsliðsmönnum Íslands og fá að spyrja þá að nokkrum spurningum.

 

Næstur er það Keflvíkingurinn Jón Norðdal Hafsteinsson, en hann spilaði 51 landsleik með liðinu frá árinu 2001-2009.

 

 

Nafn: Jón Norðdal Hafsteinsson

 

Ferill: 1997-2012

 

Félagslið: Keflavík

 

Landsliðsferill:  2001-2009

 

Hvernig var tilfinningin að vera valinn í landslið fyrst?

Hún var mögnuð, maður hafði stefnt að þessu. Gaman að fá að spila fyrir land og þjóð.

 

Hvernig var fyrsti leikur þinn fyrir Ísland?

Hann var magnaður. Hörkuleikur við Portúgal sem við unnum á lokasekúndum eftir skot frá Helga Jónasi.

 

Var móðir þín viðstödd viðureignina?

Neibb, leikurinn var í Portúgal.

 

Hver var eftirminnilegasti leikurinn sem þú lékst fyrir Ísland?

Leikurinn við Portúgal og einnig var magnað að spila við Kína í Kína á móti Yao Ming.

 

Hver var sá besti leikmaður sem þú spilaðir með fyrir landsliðið og afhverju?

Jón Arnór Stefánsson hefur allan pakkann.

 

Hversu ánægður varðst þú við það að fylgjast með landsliðinu tryggja sér sæti á sínu fyrstu lokum stórmóts?

Mjög ánægður, sérstaklega fyrir hönd vina minna í landsliðinu. Magnað ævintýri fyrir þá.

 

Afhverju heldur þú að það hafi loksins tekist fyrir liðið að tryggja sér seðilinn á lokamót?

Það er smá heppni sem spilar inní, drógumst í góðan riðil en það þarf að nýta sér heppnina og það gerðu strákarnir með mikilli vinnu.

 

Hvernig heldur þú að Íslandi eigi eftir að vegna í þessum sterka riðli sem þeir í drógust?

Þetta er aðeins sterkari riðill en sá síðasti sem við vorum í. Þetta er hálfgerður dauðariðill og við litla Ísland í honum, það er ákveðinn sigur.

 

Ef þú fengir að senda einn fyrrum leikmann Íslands með liðinu á Evrópumótið, hver væri það þá og hvernig myndi hann hjálpa liðinu?

Pétur Guðmundsson, okkur hefur alltaf skort hæð í landsliðinu. Hann gæti bakkð Hlyn upp í teignum.

 

Hvert telur þú vera, fengir þú að velja lið allra tíma, byrjunarliðs uppstilling íslenska landsliðsins?

 Jón Kr, Jón Arnór, Valur Ingimundar, Hlynur Bærings, Pétur Guðmunds,

 

Heldur þú, að þú sjálfur sem leikmaður, upp á þitt besta, værir á leið með íslenska liðinu til Berlín næsta vor?

Klárlega…

 

Hver væri þín helsta samkeppni og myndir þú taka hann/þá?

Það væri hálft liðið!! Þótt þeir séu góðir þá myndi ég koma mér í liðið.

 

Hvaða ungi leikmaður, sem ekki hefur spilað áður fyrir landsliðið, myndir þú veðja á að ætti eftir að spila yfir 50 landsleiki í framtíðinni?

 Martin Hermannsson er búinn að spila nokkra, en ég held að þeir eigi eftir að verða miklu fleiri.

 

Hverja telur þú tvo mikilvægustu leikmenn íslenska liðsins í dag og afhverju? 

Jón Arnór segir sig sjálft. Hlynur er óþrjótandi jaxl sem bakkar ekki fyrir neinum, Einnig er Haukur líka orðinn lykilleikmaður í þessu liði.

 

Á að bregða landi undir fót og fylgja liðinu til Berlín?

Að sjálfsögðu…

Fyrri viðmælendur:Pétur GuðmundssonGuðjón SkúlasonGuðmundur Bragason

                      Hermann Hauksson

                      Tómas Holton

                      Valur Ingimundarson

                      Jón Kr. Gíslason

                      Einar Bollason

                      Axel Nikulásson

Fréttir
- Auglýsing -