HomeFréttirHörður og Jón með mikla alþjóðlega reynslu

Hörður og Jón með mikla alþjóðlega reynslu

 

Mikið hefur verið og er að fara gerast hjá landsliði okkar íslendinga þetta árið. Fyrst voru það Smáþjóðaleikarnir, sem voru hér heima í byrjun júní. Þar sem að liðið náði öðru sæti. Næst er það hinsvegar lokamót Eurobasket í Berlín nú í september. Við það tilefni fannst okkur kjörið að hafa uppi á nokkrum fyrrum landsliðsmönnum Íslands og fá að spyrja þá að nokkrum spurningum.

 

Næstur er það vestanmaðurinn Birgir Örn Birgisson, en hann spilaði 26 landsleiki frá árinu 1995-2000.

 

Nafn: Birgir Örn Birgisson

  

Félagslið / Ferill:

Byrjaði 1990 þá 21 árs gamall að spila með Ungmennafélagi Bolungarvíkur í 2 deildinni. Síðan voru það Þór Ak , Keflavík, Stuttgart, SG Sechtem og loks KFÍ.

 

Landsliðsferill: 1995-2001

 

Hvernig var tilfinningin að vera valinn í landslið fyrst? 

Æðisleg…

 

Hvernig var fyrsti leikur þinn fyrir Ísland?

 

Frekar rólegur spilaði bara í 4-5mín en var einstaklega stoltur og ánægður.

  

Hver var eftirminnilegasti leikurinn sem þú lékst fyrir Ísland? 

Það var væntanlega Ísland – Írland í höllinni 1996 í forriðli Evrópukeppninar. Þeirra besti maður hafði skorað 23 stig í fyrri hálfleik og ég var settur til höfuðs honum í þeim seinni. Hann byrjaði á því að troða yfir mig , en síðan skoraði hann ekki stig og við unnum leikinn og komumst áfram.

 

Hver var sá besti leikmaður sem þú spilaðir með fyrir landsliðið og afhverju?

Falur Harðarson. Einstaklega óeigingjarn leiðtogi sem hafði alltaf markmið liðsins efst í huga.

 

Hversu ánægður varðst þú við það að fylgjast með landsliðinu tryggja sér sæti á sínu fyrstu lokum stórmóts?

Mjög svo…

 

Afhverju heldur þú að það hafi loksins tekist fyrir liðið að tryggja sér seðilinn á lokamót?

Vorum heppnir með riðil og andstæðinga.

 

Hvernig heldur þú að Íslandi eigi eftir að vegna í þessum sterka riðli sem þeir í drógust?

Ja, hver eru markmiðin? Tel ekki að þeir eigi eftir að vinna leik.

 

Ef þú fengir að senda einn fyrrum leikmann Íslands með liðinu á Evrópumótið, hver væri það þá og hvernig myndi hann hjálpa liðinu? 

Pétur Guðmundsson…

 

Heldur þú, að þú sjálfur sem leikmaður, upp á þitt besta, værir á leið með íslenska liðinu til Berlín?

Ég væri allavega að stefna að því og gera allt til að koma mér í liðið.

 

Hverja telur þú tvo mikilvægustu leikmenn íslenska liðsins í dag og afhverju? 

Hörður Vilhjálmsson og Jón Arnór.  Þeir eru með mikla alþjóðlega reynslu sem nýtist vel.

 

Á að bregða landi undir fót og fylgja liðinu til Berlín?

Væntanlega…

Fyrri viðmælendur:Pétur GuðmundssonGuðjón SkúlasonGuðmundur Bragason

                      Hermann Hauksson

                      Tómas Holton

                      Valur Ingimundarson

                      Jón Kr. Gíslason

                      Einar Bollason

                      Axel Nikulásson

                      Jón Norðdal Hafsteinsson

                      Jón Sigurðsson

Fréttir
- Auglýsing -