HomeFréttirEigum ansi marga mjög efnilega leikmenn

Eigum ansi marga mjög efnilega leikmenn

 

Mikið hefur verið og er að fara gerast hjá landsliði okkar íslendinga þetta árið. Fyrst voru það Smáþjóðaleikarnir, sem voru hér heima í byrjun júní. Þar sem að liðið náði öðru sæti. Næst er það hinsvegar lokamót Eurobasket í Berlín nú í september. Við það tilefni fannst okkur kjörið að hafa uppi á nokkrum fyrrum landsliðsmönnum Íslands og fá að spyrja þá að nokkrum spurningum.

 

Næstur er það KR-ingurinn Guðni Guðnason, en hann spilaði 76 landsleiki frá árinu 1985-1992.

 

 

Nafn: Guðni Ó. Guðnason

 

Félagslið / tímabil:

KR 1983-1994

ÍS 1994-1996

KFÍ 1996-1998, spilaði reyndar leiki eftir að ég var löngu hættur, síðasti leikur líklega 2001.

 

Landsliðsferill:

1985-1992, 76 landsleikir.

 

 

Hvernig var tilfinningin að vera valinn í landslið fyrst?

Mikill heiður.  Búinn að fara á landsleiki frá unga aldri og alltaf draumur að fá einhvern daginn að klæðast landsliðsbúningnum

 

Hvernig var fyrsti leikur þinn fyrir Ísland?

Noregur 1985 ef ég man rétt.

 

Var móðir þín viðstödd viðureignina?

Ekki í það skiptið þar sem leikurinn var í Noregi, annars sáu foreldrar mínir flesta ef ekki alla leiki mína frá því maður var smá peð.

 

Hver var eftirminnilegasti leikurinn sem þú lékst fyrir Ísland?

Ætli það sé ekki Króatíuleikurinn 1992, eftirminnilegt að mæta Petrovic, Kukoc og öllum þessum köllum, eins eru úrslitin minnistæð(51-124)!, vorum teknir í mikla kennslustund, eins var Þýskalandsleikurinn daginn áður minnistæður en þá stóðum við lengi vel í Schrempf og félögum.  Að lokum verð ég að minnast á sigurinn gegn Norðmönnun 1986, þegar Pálmar skoraði sigurkörfuna góðu og kom okkur í B keppnina.

 

Hver var sá besti leikmaður sem þú spilaðir með fyrir landsliðið og afhverju?

Pétur Guðmundsson, .  Ég spilaði samt mjög fáa leiki með honum þar sem hann mátti ekkki spila með liðinu þar sem hann var atvinnumaður í NBA.

 

Hversu ánægður varðst þú við það að fylgjast með landsliðinu tryggja sér sæti á sínu fyrstu lokum stórmóts?

Afskaplega ánægður.  Maður átti nú ekki von á að maður ætti eftir að upplifa Ísland á lokamóti, alveg frábært.

 

Afhverju heldur þú að það hafi loksins tekist fyrir liðið að tryggja sér seðilinn á lokamót?

Margt spilar saman.  Óli heitinn Rafns kemur á breytingum á fyrirkomulagi sem gefur okkur séns.  Svo drögumst við í þennan hagstæða riðil og verkefnið var að leggja Englendingana sem tókst svo eftirminnilega.  Aðalástæðan er samt gott landslið, við höfum aldrei átt eins sterkt landslið og núna.

 

Hvernig heldur þú að Íslandi eigi eftir að vegna í þessum sterka riðli sem þeir í drógust?

Þetta á eftir að verða mjög erfitt, verða svo sem engin Króatíuúrslit eins og 1992 en vonandi eigum við eftir að stríða þessum köllum eitthvað.

 

Ef þú fengir að senda einn fyrrum leikmann Íslands með liðinu á Evrópumótið, hver væri það þá og hvernig myndi hann hjálpa liðinu?

Pétur Guðmunds, hæðin og leikskilningurinn.  Pétur okkar allra besti leikmaður frá upphafi.

 

Hvert telur þú vera, fengir þú að velja lið allra tíma, byrjunarliðs uppstilling íslenska landsliðsins?

Hmm.  Jón Arnór Stefánsson, Jón Sigurðsson, Haukur Helgi Pálsson, Hlynur Bæringsson og Pétur Guðmundsson.

 

Heldur þú, að þú sjálfur sem leikmaður, upp á þitt besta, værir á leið með íslenska liðinu til Berlín?

Það er nú erfitt að bera saman körfuboltann þá og nú.  Gæðin orðin svo miklu miklu meiri í dag.  Hver veit nema það væri pláss fyrir baráttuhund sem hitti stundum úr opnum skotum.

 

Hver væri þín helsta samkeppni og myndir þú taka hann/þá?

Samkeppni?, ég var skotbakvörður þegar ég var skástur, ekki viss um að ég myndi slá út Martin, Brynjar, Loga og þessa kalla.

 

Hvaða ungi leikmaður, sem ekki hefur spilað áður fyrir landsliðið, myndir þú veðja á að ætti eftir að spila yfir 50 landsleiki í framtíðinni? 

Sá æfingaleik með U18 liðinu um daginn, þar eigum við ansi marga mjög efnilega leikmenn. Alveg klárt að Kristinn Pálsson mun eiga góðan landsliðsferil, alvöruleikmaður þar á ferð.  Reyndar fleiri framtiðarlansliðsmenn í U18 liðinu eins og Kári Jóns, Þórir o.fl.

 

Hverja telur þú tvo mikilvægustu leikmenn íslenska liðsins í dag og afhverju?

Jón Arnór er mikilvægastur, okkar besti leikmaður í dag og leiðtogi á velinum.  Hlynur Bæringsson er einnig gríðar mikilvægur, án hans getum við ekki verið.

 

Á að bregða landi undir fót og fylgja liðinu til Berlín?

Reyndar ætla ég út í haust, já að sjálfsögðu fylgir maður liðinu til Berlínar

Fyrri viðmælendur:Pétur GuðmundssonGuðjón SkúlasonGuðmundur Bragason

                      Hermann Hauksson

                      Tómas Holton

                      Valur Ingimundarson

                      Jón Kr. Gíslason

                      Einar Bollason

                      Axel Nikulásson

                      Jón Norðdal Hafsteinsson

                      Jón Sigurðsson

                      Birgir Örn Birgisson

Fréttir
- Auglýsing -