Falur Harðarson gaf sér tíma í smá viðtal fyrir utan höllina nú rétt í þessu fyrir leik Íslands og Ítalíu. Falur sagði okkar lið eiga við enn eitt fjallið í þessu móti og að í kvöld yrðum við að fá meira frá Pavel Ermolinski miðað við leikinn gegn Þýskalandi í gær. Falur hrósaði um leið Jóni Arnóri Stefánssyni fyrir sinn leik í gær.



