HomeFréttirHörður áfram en Sigurður úr leik

Hörður áfram en Sigurður úr leik

Sigurður Þorsteinsson náði ekki að fylgja eftir frábærum leik sínum í fyrstu umferð grísku bikarkeppninnar þegar lið hans, Doxa Pefkon mætti Lavrio í 16 liða úrsltum annarrar umferðar. Sigurður var aðeins með tvö stig í níu stiga tapi, 60-69. 

Herði Vilhjálmssyni gekk betur en lið hans Trikala sigraði Peristeri, 79-100, þar sem að Hörður setti niður níu stig. Trikala heldur því áfram inn í 8 liða úrslit annarar umferðar þar sem liðið mætir Iraklis á mánudaginn.

Fréttir
- Auglýsing -