spot_img
HomeFréttirÚrslit: FSu með öruggan sigur á Blikum

Úrslit: FSu með öruggan sigur á Blikum

Riðlakeppninni í Lengjubikar karla lauk í kvöld með viðureign FSu og Breiðabliks þar sem Iðu-menn höfðu öruggan 98-64 sigur á Blikum.

Gunnar Ingi Harðarson var stigahæstur í liði FSu með 29 stig og þar af 5/8 í þristum en hjá Breiðablik var Gaðrar Pálmi Bjarnason með 13 stig. 

Liðin sem komin eru áfram í karlaflokki

Grindavík

KR 

Haukar

Stjarnan

FSu

Tindastóll

Þór Þorlákshöfn

Njarðvík

Mynd úr safni/ Ari Gylfason gerði 13 stig í liði FSu í kvöld

Fréttir
- Auglýsing -