HomeFréttirReal Madrid Intercontinental Cup meistarar

Real Madrid Intercontinental Cup meistarar

Sergio Llull leiddi Real Madrid að 5. Intercontinental Cup titli félagsins.

 

Real Madrid lagði brasilíska liðið Bauru um helgina í Sao Paulo í Intercontinental Cup. Sergio Llull var með 21 stig, 5 fráköst, 6 stoðsendingar og 1 stolinn bolta fyrir Real í úrslitaleiknum. Þetta er 5. titill liðsins á mótinu en það vann síðast árið 1981.

 

Intercontinental Cup keppnin er haldin árlega af FIBA. Besta félagslið Evrópudeildarinnar mætir þar besta félagsliði FIBA Americas deildinni. Eins og er afþakka NBA meistarar að taka þátt, sem besta lið Norður-Ameríku deildarinnarm en Bandarískt lið sigraði keppnina síðast 1974. Til stendur að stækka keppnina með þátttöku topp liða úr deildunum í Eyjaálfu, Asíu og Afríku.

 

Mynd: Sigurlið Real Madrid

Fréttir
- Auglýsing -