Búið er að breyta leikstað undanúrslita og úrslita Lengjubikarsins 2015. Undanúrslit kvenna fara fram í TM-höllinni í Keflavík og undanúrslit karla og úrslitaleikirnir verða í íþróttahúsinu Iðu á Selfossi. Þetta kemur fram á heimasíðu KKÍ.
Þegar ljóst var að Tindastóll ætti ekki lið í úrslitunum né annað lið af svæðinu töldu forráðamenn Tindastóls og KKÍ það best fyrir körfuknattleikinn í landinu að úrslitin fari fram á suðvesturhorni landsins þar sem að öll liðin koma þaðan.
KKÍ og félögin sem taka þátt í úrslitum Lengjubikarins þakka Tindastól fyrir þá vinnu sem þeir höfðu farið í vegna úrslitanna sem og þann skilning að best sé fyrir úrslit Lengjubikarsins að þau fari fram á suðvesturhorninu að þessu sinni.
Dagskrá:
Fimmtudagur 1. október TM-höllin Keflavík
Kl. 18.15 Keflavík-Valur
Kl. 20.30 Haukar-Grindavík
Föstudagur 2. október Iða Selfossi
Kl. 18.15 FSu-Stjarnan
Kl. 20.30 Þór Þ.-Haukar
Laugardagur 3. október Iða Selfossi
Kl. 14.00 Úrslitaleikur kvenna
Kl. 16.30 Úrslitaleikur karla
Mynd/ Hermann Snorri – Ari Gylfason og félagar í FSu fá Lengjubikarúrslitin á sinn heimavöll þetta árið.



