Í dag fara fram úrslit Lengjubikarkeppninnar í bæði karla- og kvennaflokki. Leikið verður í Iðu á Selfossi þar sem kvennaleikurinn hefst kl. 14:00 en karlaleikurinn 16:30.
Í kvennaflokki mætast Keflavík og Haukar en Stjarnan og Þór Þorlákshöfn mætast í karlaflokki. Hvorki Stjarnan og Þór Þorlákshöfn hafa áður unnið Fyrirtækjabikarkeppni KKÍ en það hafa Haukar gert þrívegis í kvennaflokki og Keflavík sjö sinnum!
Lifandi tölfræði verður frá báðum leikjum á KKI.is og þá verður Sport TV með báða leikina í beinni á netinu.



