Um helgina var leikið í 9. flokki drengja. A-riðill fór fram í Ásgarði, b-riðill var í Kennaraháskólanum, c-riðill var í Grindavík og d-riðill í Hertz-höllinni (Seljaskóla). Úrslit leikja í a-riðli voru eftirfarandi:
Þór Akureyri 52-40 Stjarnan
Njarðvík 25-64 KR
Þór Akureyri 63-40 Keflavík
Stjarnan 52-33 Njarðvík
KR 68-59 Keflavík
Þór Akureyri 59-29 Njarðvík
Stjarnan 61-51 KR
Njarðvík 33-55 Keflavík
Þór Akureyri 65-62 KR
Stjarnan 49-28 Keflavík
KR 68-59 Keflavík
Þór mætti með stóran hóp af leikmönnum, liðið lék vel um helgina og hafði sigur í öllum leikjum. Það hefur verið haldið vel utan um þennan leikmannahóp og hann er að styrkjast á meðan hefur kvarnast úr sumum öðrum liðum. Stjarnan lenti í öðru sæti. KR liðið hefur eflst síðan í fyrra og náði þriðja sæti. Keflavík var í því fjórða og það var hlutskipti UMFN að falla. Nokkur skemmtileg atvik áttu sér stað á mótinu. Eitt þeirra var þegar nýr leikmaður KR var að leika á móti samherjum frá því í vor (Keflavík) og „gamla“ þjálfara sínum, sem er faðir hans.
Myndin er af liðum Þórs og UMFN.
Hér að neðan eru úrslit helgarinnar í 9. flokki drengja eftir fyrstu umferð en úrslit vantar úr C-riðli en það mót fór fram í Röstinni í Grindavík:
| Nr. | Lið | L | U | T | S | Stig/Fen | Stg í L/Fen m | Heima s/t | Úti s/t | Stig heima s/f | Stig úti s/f | Síðustu 5 | Síð 10 | Form liðs | Heima í röð | Úti í röð | JL |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. | Þór Ak. | 4 | 4 | 0 | 8 | 239/170 | 59.8/42.5 | 4/0 | 0/0 | 59.8/42.5 | -/- | 4/0 | 4/0 | +4 | +4 | – | 1/0 |
| 2. | Stjarnan | 4 | 3 | 1 | 6 | 202/164 | 50.5/41.0 | 3/0 | 0/1 | 54.0/37.3 | 40.0/52.0 | 3/1 | 3/1 | -1 | +3 | -1 | 0/0 |
| 3. | KR | 4 | 2 | 2 | 4 | 245/210 | 61.3/52.5 | 1/0 | 1/2 | 68.0/59.0 | 59.0/50.3 | 2/2 | 2/2 | +2 | +1 | +1 | 0/1 |
| 4. | Keflavík | 4 | 1 | 3 | 2 | 182/213 | 45.5/53.3 | 0/0 | 1/3 | -/- | 45.5/53.3 | 1/3 | 1/3 | -2 | – | -2 | 0/0 |
| 5. | Njarðvík | 4 | 0 | 4 | 0 | 119/230 | 29.8/57.5 | 0/2 | 0/2 | 29.0/59.5 | 30.5/55.5 | 0/4 | 0/4 | -4 | -2 | -2 | 0/0 |
| Nr. | Lið | L | U | T | S | Stig/Fen | Stg í L/Fen m |
Fréttir |
|---|



