Valsmenn hafa fengið til liðs við sig erlendan leikmann fyrir átökin í 1. deildinni í vetur. Leikmaðurinn heitir Jamie Stewart, en hann er rúmlega 190 cm, 24 ára, bakvörður. Jamie hefur spilað 2 tímabil fyrir Montana State í NCAA deildinni og skilaði þar 9 stigum í leik og 4 fráköstum. Jamie er sagður hafa mjög góða stjórn á boltanum og vera sterkur varnarmaður. Það var facebook síða körfuknattleiksdeildar Vals sem staðfesti þetta í dag.




